Hvað er Stjaron......

Stjaron er samsteypingur af tveimur einstaklingum. Aron Óskarsson og Kristján Guðmundsson. Við höfum átt við hitt og þetta síðan við byrjuðum að slæpast saman. Fyrst stunduðum við mikið, og gerum enn, leikhúsvinnu s.s. ljós, hljóð, sviðsmyndasmíði og meira að segja höfum við leikið! Þetta átti sér mestmegnis stað í leikhúsi Dalvíkur og leikhúsi Akureyrar. Þessi vinna fór að leiða út í önnur skemmtileg verkefni sem við unnum saman. Núna í dag reynum við að stunda sem mikið og við getum í kringum skemmtanabransann. Hér fyrir neðan er smá brot af því sem við gerum.

Þetta er aðeins brot af því besta, hafðu endilega samband ef þú vilt gera eitthvað skemmtilegt!

 

Það sem við stundum til dæmis er.......
Sketchar
Við höfum verið að vinna í sketchum undanfarið og komum til með að fara birta þá hér og þar. Fylgstu með !
Skemmtikraftar og veislustjórn
Við höfum komið fram víða sem skemmtikraftar og veislustjórar. Við erum eldhressir og lofum þér góðri skemmtun .Hvaða viburður sem er (innan siðsamlegra marka (-; )
Umboðsþjónusta

Við höfum verið að fást aðeins við umboðsvinnu.

Hafðu endilega samand ef

þig vantar allt frá ljósmyndara í

fermingatöku,upp í

hljómsveit á árshátíð!

Viðburðarþjónusta
Eigum allt til staðar til þess að sjá um tæknilegu hliðina á smærri viðburðum s.s. giftingum, afmælum, minni árshátíðum og böllum.
Plötusnúðar
Við höfum víða verið fengnir sem plötusnúðar fyrir diskótek, böll, afmæli, giftingar og í raun hvaða skemmtun sem þarfnast tónlistar. Eigum mikið safn af tónlist fyrir allan aldur.

Okkar "mottó"

"Það er engin hugmynd svo vitlaus að ekki sé hægt að ræða hana! "

 

Við höfum alltaf stefnt að því að framkvæma allar þær hugmyndir sem detta í hausinn á okkur. Ef þú hefur einhverja hugmynd sem þú vilt ræða komdu með hana, ekki spurning.